Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Hver er uppruni orðsins „bull“ í merkingunni þvæla eða vitleysa?
Nafnorðið bull ‘suða, suðuhljóð; þvættingur’ er leitt af sögninni bulla ‘sjóða, vella; þvaðra, rugla’. Samkvæmt Ritmálssafni Orðabókar Háskólans þekkist nafnorðið í málinu að minnsta kosti frá 17. öld.
Í skyldum málum má samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:92) nefna færeysku sögnina bulla og nafnorðið bull í sömu merkingu og nýnorsku bulla, buldra ‘vella, sulla; masa’.
Heimild og mynd:
Ásgeir Blöndal Magnússon 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík.
Guðrún Kvaran. „Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu?“ Vísindavefurinn, 17. júlí 2024, sótt 7. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=85833.
Guðrún Kvaran. (2024, 17. júlí). Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=85833
Guðrún Kvaran. „Af hverju er nafnorðið bull notað um þvælu eða vitleysu?“ Vísindavefurinn. 17. júl. 2024. Vefsíða. 7. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=85833>.