Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir orðið senditík?

Guðrún Kvaran

Orðið senditík heyrist sjaldan nú orðið en var einkum notað um þann sem tók að sér sendiferðir fyrir húsbónda sinn eða aðra sem stóðu honum sjálfum hærra í þjóðfélagsstiganum. Merkingin er fremur niðrandi og orðið notað þeim til háðungar sem önnuðust viðvikin. Jákvæðari merkingu hafa aftur á móti orðin sendill og sendisveinn.


Þessir þýsku sendiboðar voru varla neinar senditíkur.

Síðari liðurinn -tík er notaður í sams konar niðrandi merkingu í orðunum hjólatík ‘lélegt reiðhjól’ og bíltík ‘bílskrjóður’.

Mynd: Bicycle messengers. Flickr.com. Höfundur myndar er Carl Guderian. Myndin er birt undir Creative Commons leyfi.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.1.2007

Spyrjandi

Hákon Sigurðsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið senditík?“ Vísindavefurinn, 15. janúar 2007. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6465.

Guðrún Kvaran. (2007, 15. janúar). Hvað þýðir orðið senditík? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6465

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið senditík?“ Vísindavefurinn. 15. jan. 2007. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6465>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað þýðir orðið senditík?
Orðið senditík heyrist sjaldan nú orðið en var einkum notað um þann sem tók að sér sendiferðir fyrir húsbónda sinn eða aðra sem stóðu honum sjálfum hærra í þjóðfélagsstiganum. Merkingin er fremur niðrandi og orðið notað þeim til háðungar sem önnuðust viðvikin. Jákvæðari merkingu hafa aftur á móti orðin sendill og sendisveinn.


Þessir þýsku sendiboðar voru varla neinar senditíkur.

Síðari liðurinn -tík er notaður í sams konar niðrandi merkingu í orðunum hjólatík ‘lélegt reiðhjól’ og bíltík ‘bílskrjóður’.

Mynd: Bicycle messengers. Flickr.com. Höfundur myndar er Carl Guderian. Myndin er birt undir Creative Commons leyfi....