Til eru mismunandi tegundir eða stig albínisma, svokallaður oculocutaneous albínismi hefur áhrif á augu, hár og húð en ocular albínismi hefur aðallega áhrif á augu, en hár- og húðlitur þarf ekki að vera mjög frábrugðinn því sem gengur og gerist meðal annarra ættmenna sem ekki eru albínóar. Þar sem albínismi er skortur á litarefni er útilokað að albínói sem er af hvítu fólki kominn geti verið þeldökkur á hörund. Væri hann svartur, væri ekki um albínóa að ræða. Meira er fjallað um albínisma í svari við spurningunni Af hverju fæðast börn sem albínóar? en í þessu svari er stuðst við þá umfjöllun. Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Finnast albínóar meðal allra dýrategunda?
- Af hverju er mannfólkið ekki allt eins á litinn?
- Er hægt að auka melanín í líkamanum?