Spurning
Hvaða pláneta er næst Mars?
Spyrjandi
Ólöf, f. 1994
Svar
Það er jörðin sem er næsta pláneta við Mars. Fjarlægðin milli þeirra er mjög breytileg, allt frá tæplega 56 milljón km til 400 milljón km. Þessi munur stafar af því að reikistjörnur sólkerfisins ganga í sporbaug umhverfis sólina. Röðin á plánetum sólkerfisins frá sólu er þessi: Merkúríus, Venus, jörðin, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus.![]() |
Rússar gerðu fyrstu tilraunir til að komast til Mars á árunum 1960-1962 en þær mistókust allar. Fyrsta ferðin sem heppnaðist var farin árið 1964, þá flaug bandaríska geimfarið Mariner 4 fram hjá hnettinum og náði 20 ljósmyndum af litlum hluta yfirborðsins. Síðan þá hafa fjölmargir könnunarleiðangrar haldið í átt að Mars. Sumir hafa heppnast, á meðan aðrir hafa misheppnast.
Heimildir og mynd:
- Stjörnufræðivefurinn - Mars
- Hvenær var seinasti leiðangurinn farinn til rannsókna á Mars? eftir Þorstein Þorsteinsson.
- The Solar System. Sótt 13.6.2012.
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.6.2012
Efnisorð
Tilvísun
Helgi James Þórarinsson og Kristín Hekla Örvarsdóttir. „Hvaða pláneta er næst Mars?“. Vísindavefurinn 14.6.2012. http://visindavefur.is/?id=49829. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundar
Helgi James Þórarinssonnemandi í Háskóla unga fólksinsKristín Hekla Örvarsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksins






