- Eftir hvað langan tíma opna kettlingar augun? Og hvenær á að byrja að gefa þeim kettlingamat? (Sigríður Erla Guðmundsdóttir)
- Af hverju sjá kettlingar ekkert þegar þeir fæðast? (Fjóla Aðalsteinsdóttir)
Kettlingar opna yfirleitt augun einni til tveimur vikum eftir að þeir fæðast. Það er samt misjafnt og eru til þess dæmi að kettlingar hafi fæðst með augun opin. Þegar kettlingar eru um 8 vikna er óhætt að fara að skipta hægt og rólega yfir í kettlingamat og þá helst þurrmat vegna hárloss. 3-4 vikna gamlir fara kettlingar oft að reyna að éta matinn hjá læðunni, en þá er betra að gefa þeim kettlingamat í sérskál þar sem „fullorðins“ kattamatur er ekki góður fyrir þá. Ef kötturinn er „inniköttur“ er gott seinna meir þegar hann fer að eldast, að gefa honum sér mat fyrir inniketti því að þeir fá minni hreyfingu. Heimildir og mynd:
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.