Spurning

Hvernig er stjórnarfariđ í Kína?

Spyrjandi

Snćdís Arnardóttir

Svar

Frá ţví Kína var sameinađ í eitt ríki hefur stjórnun landsins miđađ ađ ţví ađ halda landinu saman sem einu ríki. Sökum ţess hversu víđfemt landiđ ţá hafa landsstjórnir hvers tíma orđiđ ađ dreifa valdi sínu og ţví urđu snemma til stađbundin stjórnvöld sem höfđu ţađ hlutverk ađ tryggja yfirráđ valdsstjórnarinnar. Stjórnarfariđ hefur ţróast frá ţví ađ vera einveldi konungs og keisara öldum saman yfir í lýđveldi snemma á 20. öldinni sem varđi ţó stutt. Um miđja 20. öldina komst Kommúnistaflokkurinn til valda í Kína en í dag byggir stjórnarfar landsins á sósíalisma međ kínverskum einkennum.

Í stađ ţess ađ leggja sósíalískt samfélag alfariđ niđur hafa Kínverjar lagađ sósíalismann ađ sínu samfélagi. Sósíalismi međ kínverskum einkennum merkir ađ samfélagiđ byggir á ţremur kenningum; kenningum Konfúsíusar, Marx og Leníns og kapítalisma.



Hugmyndir Konfúsíusar móta feđraveldiđ sem ríkir í Kína og ţjóđarhollustuna sem ađ kínverskir borgarar eiga ađ búa yfir. Ţćr styđja tengslamyndanir, ţađ er ađ einstaklingurinn verđi ađ hafa félagsleg tengsl á réttum stöđum til ađ hafa möguleika á ađ hafa áhrif. Samkvćmt Konfúsíusi á stuđningur viđ leiđtoga ađ vera alger og ţađ er ekki viđ hćfi ađ efast um vald hans. Einstaklingurinn á ađ vera góđhjartađur og hefur rétt til ađ mótmćla óréttlćti. Samfélagiđ á ađ byggja á raunsći.

Kenningar Marx og Leníns móta stjórnkerfi landsins. Kommúnistaflokkurinn er langstćrsti stjórnmálaflokkurinn í Kína og hefur veriđ viđ völd frá árinu 1949. Skipulag ríkisins byggir á fimm ára áćtlunarbúskap. Kínverski herinn styđur Kommúnistaflokkinn og fylgir línum hans. Stjórnkerfiđ er miđstýrt og ćtíđ er hugađ ađ ţví ađ hagsmunum flokksins sé borgiđ.

Kenningar kapítalismans móta hagkerfi Kína en samkvćmt lögmálum hans rćđur markađurinn. Áhrif kapítalismans eru bćđi til góđs og ills. Ţannig hefur orđiđ mikill efnahagslegur uppgangur en um leiđ hefur biliđ á milli ríkra og fátćkra breikkađ. Kenningar kapítalista gera kröfu um ađ landinu sé stjórnađ međ lögum svo ađ markađurinn viti ađ hverju hann gengur, en engu ađ síđur hefur spilling orđiđ vandamál í Kína međ tilkomu markađshagkerfisins.

Frekari fróđleikur á Vísindavefnum:

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur8.7.2009

Tilvísun

Helga Kristín Kolbeins. „Hvernig er stjórnarfariđ í Kína?“. Vísindavefurinn 8.7.2009. http://visindavefur.is/?id=29009. (Skođađ 24.5.2013).

Höfundur

Helga Kristín Kolbeinsstjórnsýslufrćđingur, MPA



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Nćsti )

Pólskur barnalćknir, kennslufrćđingur og barnabókahöfundur. Rak munađarleysingjahćli fyrir gyđingabörn í Varsjá og sýndi ţeim virđingu, en lét svo lífiđ ásamt ţeim.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans