Spurning
Hvađ skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka?
Spyrjandi
Kristján Heiđar Jóhannsson
Svar
Vaninn er ađ skipta indóevrópskum málum í tvo yfirflokka, svokölluđ kentum-mál og satem-mál, en ţessum flokkum aftur í alls ellefu undirflokka. Kentum og satem draga nafn af ţví hvort orđiđ 'hundrađ' hafđi lokhljóđiđ c (k) í framstöđu, sbr. latínu centum 'hundrađ' eđa önghljóđiđ s, sbr. indversku satám 'hundrađ'. Til kentum-mála teljast germönsk mál, keltnesk mál, ítalísk mál, gríska, anatólísk mál og tokkaríska.
Til satem mála teljast: slavnesk mál, baltnesk mál, albanska, armenska, indó-írönsk mál.
Sjá ađ öđru leyti svar sama höfundar viđ spurningunni Hvađa mál eru germönsk, rómönsk og slavnesk?
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur29.9.2000
Flokkun:
Efnisorđ
Tilvísun
Guđrún Kvaran. „Hvađ skiptast indóevrópsk tungumál í marga flokka? “. Vísindavefurinn 29.9.2000. http://visindavefur.is/?id=950. (Skođađ 25.5.2013).
Höfundur
Guđrún Kvaranprófessor





