Spurning

Hver byggði Eiffelturninn, hvers vegna var hann byggður og hvenær?

Spyrjandi

Árný Stella, f. 1991
Svanfríður Magnúsdóttir, f. 1988
Sahara Rós Ívarsdóttir, f. 1992

Svar

Eiffelturninn er eitt þekktasta tákn Parísarborgar og hefur verið sóttur heim af yfir 200 milljón manns.

Forsaga turnsins er að halda átti heimssýningu í París árið 1889 í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá frönsku byltingunni, en byltingin gjörbreytti á sínum tíma stjórnkerfi Frakklands. Haldin var samkeppni um minnismerki hátíðarinnar og hugmynd verkfræðingsins Gustaves Eiffels varð fyrir valinu. Hafist var handa við að reisa turninn sem við hann er kenndur árið 1887.


Hér sést Eiffelturninn hálfkláraður í júlí árið 1888.

Um 300 manns tókst að ljúka verkinu á tveimur árum; Eiffelturninn var vígður 31. mars árið 1889 og opnaður almenningi 6. maí sama ár. Turninn var 300 metrar á hæð sem gerði hann að hæstu byggingu heims. Þessum titli hélt Eiffelturninn allt til ársins 1930 þegar Chrystlerbyggingin var reist í New York. Eiffelturninn er nú um 322 metrar á hæð ef tekin er með hæð útvarpsloftnets sem sett var á topp turnsins árið 1959.

Heimildir og mynd
Þetta svar er eftir nemanda í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2006.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur31.7.2006

Tilvísun

Kolbrún Huld Þórarinsdóttir. „Hver byggði Eiffelturninn, hvers vegna var hann byggður og hvenær?“. Vísindavefurinn 31.7.2006. http://visindavefur.is/?id=6097. (Skoðað 20.5.2013).

Höfundur

Kolbrún Huld Þórarinsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Hans Christian Ørsted
(1777-1851)
( Fyrri Næsti )

Danskur eðlis- og efnafræðingur, uppgötvaði að rafstraumar skapa segulsvið kringum sig og hafa t.d. áhrif á segulnálar. Hafði einnig áhrif á heimspeki og vísindamiðlun á sinni tíð.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013