Til þess að losna við bauga eða poka undir augum er mikilvægt að fá nægan svefn, varast sterkt sólarljós, forðast mikla saltneyslu og streitu og hætta að reykja ef viðkomandi reykir. Þessi ráð eru ekki eingöngu góð fyrir augun heldur heilsuna almennt. Einnig getur verið gott að setja kalda bakstra á augun, til dæmis að dýfa bómullarhnoðra í fíkjusafa, rósavatn eða kalda mjólk, leggjast niður með hærra undur fótum en höfuði, setja hnoðrana á lokuð augun og liggja kyrr í 10 mínútur. Sömuleiðis mætti nota gúrkusneiðar eða hráar kartöflusneiðar á sama hátt eða nudda varlega saffran- eða möndluolíu á augnsvæðið fyrir svefninn. Sért þú sá eini í ætt þinni sem er með poka undir augunum eru erfðir líklega ekki ástæða þeirra. Þá gæti borgað sig að ráðfæra sig við lækni til að komast að öðrum mögulegum orsökum. Það gæti jafnvel verið ráðlegt að leita til ónæmissérfræðings sem finnur ofnæmisvald ef hann er fyrir hendi og ráðleggur þá meðferð. Hvort sem þú hefur erft bauga eða poka undir augun eða þjáist bara af þreytu er oftast hægt að fela baugana með viðeigandi snyrtivörum. Þó ber að fara varlega í því efni ef um ofnæmi er að ræða. Heimildir, mynd og frekari fróðleikur:
Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá?

Útgáfudagur
14.12.2004
Spyrjandi
Albert Hannesson
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá?“ Vísindavefurinn, 14. desember 2004, sótt 22. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=4661.
Þuríður Þorbjarnardóttir. (2004, 14. desember). Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=4661
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað veldur baugum undir augum og hvernig losnar maður við þá?“ Vísindavefurinn. 14. des. 2004. Vefsíða. 22. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=4661>.