Spurning
Hvað er atóm eða frumeind?
Spyrjandi
María Reynisdóttir, Jón Árni,
Skarphéðinn Án Runólfsson
Svar
Það var Grikkinn Demókrítos (5. öld f.Kr.) sem fyrstur kom fram með hugtakið atóm (ódeilanlegur). Hann hugsaði sér að það væri smæsta byggingareining alls efnis. Það var síðan Dalton sem endurvakti hugmyndina snemma á nítjándu öld. Á þeirri öld færðist hugtakið yfir á minnstu eindir sem voru þekktar á þeim tíma og eru allar eins í hverju frumefni í lotukerfinu, en atómin eru líka kölluð frumeindir. Við vitum hins vegar núna að atómin sjálf eru sett saman úr enn minni eindum, róteindum, nifteindum og rafeindum. Og sögunni lýkur ekki þar því róteindirnar og nifteindirnar eru einnig samsettar úr eindum sem kallast kvarkar.Lesa má nánar um atóm í svari við spurningunni Eru atóm alls staðar og í öllu? Hver er þá munurinn á uppbyggingu manns og steins?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur6.2.2001
Flokkun:
Tilvísun
ÁE. „Hvað er atóm eða frumeind?“. Vísindavefurinn 6.2.2001. http://visindavefur.is/?id=1317. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
ÁEMarie Curie-styrkþegi við Dark Cosmology Centre í Danmörku





