Down-heilkenni (e. Down's syndrome) er erfðagalli sem stafar af því að aukalitningur er til staðar í frumum líkamans. Í flestum tilfellum er manneskja með 46 litninga í 23 pörum en einstaklingar með Down-heilkenni hafa þrjú eintök af litningi 21 og eru því alls með 47 litninga.
Aukalitninginn má rekja til mist...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona: Hverfa sáðfrumur ekki með tímanum ef maður stundar sjálfsfróun oft?
Eins og fram kemur í fróðlegu svari Ernu Magnúsdóttur við spurningunni Hvernig myndast kynfrumur? halda karlmenn áfram að mynda sáðfrumur nokkurn veginn út ævina. Það er því engin hætta á því að sáðfru...
Erna Magnúsdóttir er dósent við Læknadeild Háskóla Íslands þar sem hún kennir meðal annars fósturfræði og sameindaerfðafræði. Rannsóknir Ernu snúast um svokallaða umritunarþætti, en það eru stjórnprótín sem ákvarða hvaða gen í erfðamenginu eru tjáð hverju sinni.
Erfðamengi lífvera eins og músa og manna er eins...
Útreikningar vísindamanna benda til þess að um 8% erfðamengis manna sé upprunnið úr erfðamengi veira, og önnur 40% eru endurteknar raðir sem talið er að eigi líklega einnig uppruna sinn að rekja til veirusýkinga.[1]
Til samanburðar má nefna að aðeins um 1% af erfðaefni manna eru gen sem skrá fyrir prótínum, en ...
Eineggja tvíburar eru eins erfðafræðilega því þeir fengu afrit af sömu genum frá föður og móður. En þegar þeir fara að mynda kynfrumur munu litningar og gen foreldranna raðast handahófskennt í kynfrumur þeirra. Menn hafa 23 litningapör þannig að litningarnir munu stokkast upp í mjög margar samsetningar í hverri ky...
Við mítósu (einnig kölluð jafnskipting) skiptir tvílitna fruma sér í tvær frumur sem eru erfðafræðilega nákvæmlega eins og upphaflega fruman. Frumurnar tvær hafa nákvæmlega sömu gen og fruman sem skipti sér.
Í meiósu-skiptingu (einnig kölluð rýriskipting) skiptir tvílitna fruma sér tvisvar og útkoman verður fjó...
Slöngur (Serpentes) hafa afturenda og á honum er líkamsop þar sem úrgangur berst út. Afturendi slanga er ólíkur afturenda manna og annarra spendýra. Hann nefnist réttu nafni þarfagangur (lat. cloaca).
Afturendi slanga nefnist þarfagangur.
Hjá slöngurm berst saur í gegnum stórgirni, líkt og í spendýrum, og það...
Hér er einnig svarað spurningunni:Ef eineggja tvíburarsystur og eineggja tvíburabræður myndu para sig saman og hvort par eignast barn, er þá líklegt að börnin yrðu lík?
Eineggja tvíburar verða til þegar frjóvgað egg klofnar í tvennt. Hvenær klofnunin verður ræður því hvort tvíburarnir deila einni og sömu legkökun...
Upphaflega spurningin var eftirfarandi:Hvernig skapar líkami okkar sáðfrumur?
Kynfrumur þroskast í kynkirtlum frá upphafi kynþroska og halda áfram að þroskast fram að tíðahvörfum hjá konum en nokkurn veginn út ævina hjá körlum. Tilurð kynfruma má þó rekja allt til fyrstu vikna fósturþroska rétt eftir hreiðrun f...
Örstutta svarið við spurningunni er já það er mögulegt en mjög sjaldgæft.
Í svari sama höfundar við spurningunni Hefur tveimur dýrategundum verið blandað saman? Ef svo er, hvaða tegundum? kemur fram að æxlun á milli einstaklinga af ólíkum tegundum sé vel þekkt, bæði í náttúrunni og af manna völdum. Til þess að ...
Hér er einnig svarað öðrum spurningum um sama efni:Hvernig fer frjóvgun fram eftir að sæðið er komið inn í líkama konunnar?Geturðu lýst fyrir mér frjóvgunarferlinu?Hvernig á frjóvgun eggs sér stað í manninum?Hvað getið þið sagt mér um frjóvgun hjá manninum?Er það satt að ég hafi byrjaði sem fræ?Hægt er að miða við...
Hér er tveimur spurningum svarað. Þær eru í sinni upphaflegu mynd svona:
Hvaðan fá vísindamenn/líffræðingar fósturstofnfrumur? Banna íslensk lög notkun stofnfruma úr fósturvísum manna við rannsóknir?
Stofnfrumur úr fósturvísum manna eru frumur sem við rétt skilyrði næringarefna og vaxtarþátta má rækta í tilrau...
Í kjarna frumna eru þráðlaga fyrirbæri sem kallast litningar en í litningunum eru gen sem ákvarða eiginleika einstaklingsins, svo sem augnlit, háralit, hæð, kyn og svo framvegis.
Flestar lífverur eru tvílitna, það er litningarnir eru í pörum, en heildarfjöldi þeirra er breytilegur eftir lífverutegundum. Í m...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hver eru einkenni XXY-litningagalla?
Klinefelter-heilkenni var fyrst lýst árið 1942 þegar maður að nafni Klinefelter gaf út skýrslu um níu karlmenn sem höfðu óvenjustór brjóst, gisinn hárvöxt í andliti og á líkama, og lítil eistu sem mynduðu ekki sæði. Þessi einkenni hlutu heitið...
Johann Gregor Mendel er oft nefndur faðir erfðafræðinnar, en hann sýndi fyrstur manna fram á með tilraunum hvernig einkenni gætu erfst á milli kynslóða og setti fram kenninguna um erfðaefnið.
Mendel fæddist 22. júlí árið 1822 í Heinzendorf í Moravíu, sem nú heitir Tékkland. Þetta svæði var þá hluti af austurrís...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!