Í forngrískri byggingarlist voru þrjár megingerðir burðarsúlna og tilheyra þær hver sínum stíl:
dórískur stíll
jónískur stíll
kórintustíllHér sjást þrjár súlnareglur Forngrikkja. Lengst til vinstri er dórískur stíll, jónískur í miðjunni og kórintustíll til hægri.
Í dóríska stílnum er enginn stallur undir súlun...
Orðið parodía er komið úr grísku og merkir bókstaflega 'hliðarsöngur'. Það er yfirleitt notað um eftirlíkingar á alvarlegum skáldverkum þar sem fyrirmyndin er skopstæld.
Íslenska orðið skopstæling nær bæði yfir parodíu og hugtakið travestíu en það er dregið af ítalska orðinu travestire sem merkir að 'dulbúa'. E...
Austurríska tónskáldið Franz Joseph Haydn var fæddur árið 1732 og lést 1809. Um það skeið í tónlistarsögunni sem hófst um svipað leyti og Haydn kom í heiminn og varði fram á fyrstu ár 19. aldar er oft haft hugtakið „klassíski stíllinn“.
Klassík er gjarnan notað um list sem ýmist lagar sig eftir eða er á einhve...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Mig langar að spyrja ykkur um orðið læðing. Mér finnst ómögulegt að það tengist ekki því að læðast eins og hlaup tengist því að hlaupa eða róður tengist því að róa. Ég kíkti í orðabók og þar var bara talað um fjöturinn Læðing og skafrenning. Þá prófaði ég að gúggla læðin...
Þessari spurningu er nánast ómögulegt að svara. Eðlileg setning þarf að hafa frumlag, umsögn og (helst) andlag eða forsetningarlið. Þess vegna er ekki hægt að hrúga saman röð af skammstöfunum og fá vit úr setningunni.
Eðli skammstafana er að stytta algenga liði innan setningar í ritun en ekki tali. Vel má hugs...
Sögnin hafa telst til svokallaðra ê-sagna. Hún hefur frá fornu fari haft tvenns konar beygingu í nútíð eintölu. Annars vegar:
eg hef
þú hefr
hann/hún hefr
en hins vegar:
eg hefi
þú hefir
hann/hún hefir
Síðar var stofnhljóðinu u skotið inn á undan -r í endingunni og upp komu myndirnar þú hefur...
Talið er að Jón Ólafsson (1593-1679) sem varð svo frægur að komast alla leið til Indlands, hafi skrifað sögu sína um 1660. Þar eru óteljandi skemmtilegar og lifandi frásagnir af því sem fyrir augu hans og eyru bar. Jón var ævintýragjarn og yfirgaf heimaslóðir sínar á Vestfjörðum árið 1615 þegar hann tók sér far me...
Rithöfundurinn sem kallaði sig Þorgils gjallanda hét réttu nafni Jón Stefánsson (1851-1915) og var þingeyskur bóndi. Hann spratt úr því menningarumhverfi sem þróaðist á heimaslóðum hans í Suður-Þingeyjarsýslu undir lok 19. aldar þar sem ungt fólk sameinaðist um að kaupa og lesa nýjar og róttækar norrænar bókmennti...
Orðið felling hefur mismunandi og óskyldar merkingar, en vegna samhengisins við hin orðin í spurningunni á spyrjandi líklega við hið efnafræðilega fyrirbrigði sem einnig er kallað botnfelling og útfelling (e. precipitate eða precipitation) úr lausn.
Lausn samanstendur af tveimur þáttum, leysinum (e. solvent) og...
Þetta fer að sjálfsögðu eftir hönnun stólsins, viðartegund og fleiru. Ef hann er til dæmis úr harðviði sem þrífst ekki á Íslandi, vel heflaður, slípaður og lakkaður, er ekki líklegt að spyrjanda takist að koma lífi í hann. En ef maður smíðar sér stól til að mynda úr Alaskavíði (Salix alaxensis), lætur vera að taka...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvaða bókmenntastefna tíðkaðist á tímum upplýsingarinnar?
Upplýsingin var ekki eiginleg bókmenntastefna þó að áherslumál hennar birtust með ýmsum hætti í skáldskapnum. Mikið var lagt upp úr skynsemi og þekkingarleit en bókmenntir áttu líka að vekja ánægju. Svokallaður ...
Tónlist 20. aldar hefur einkennst af breytingum og fjölbreytni. Fjölmiðlar ásamt upptöku- og dreifingartækni nútímans hafa haft veruleg áhrif á dreifingu tónlistar og aðgengi að henni á öldinni. Og seinni hluta aldarinnar hefur tölvan líka haft veruleg áhrif sem hljóðgjafi og tæki til tónsmíða. Líklegt er að tónli...
Adam Smith fæddist árið 1723 í hafnarbænum Kirkcaldy á austurströnd Skotlands og dó sextíu og sjö árum síðar, árið 1790. Eftir hann komu út tvær merkilegar bækur meðan hann lifði og að minnsta kosti önnur þeirra er ótvírætt meistaraverk. Fyrra ritið fjallaði um siðfræði og gerði höfund sinn þekktan í landi sínu en...
Hér er einnig svarað spurningu Hugrúnar Jónsdóttur (f. 1989):
Hvað einkenndi barokktímabilið í sögu tónlistarinnar?
Barokktónlist er tónlist sem samin er á svokölluðu barokktímabili, eða um 1600-1750. Stundum er tímabilinu skipt í þrennt og er þá talað um frumbarokk (um 1600-1650), miðbarokk (1650-1700) og síðba...
Hjólabretti eiga sér frekar langa sögu og eru sennilega töluvert eldri en flestir gera sér grein fyrir. Fljótlega upp úr aldamótunum 1900 mátti sjá farartæki sem samanstóðu af einföldum planka með gömlum hjólaskautahjólum festum undir. Þessi frumstæðu bretti mætti segja að væru forverar eiginlegra hjólabretta.
...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!