Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Eru dekkri viðartegundir í heitum löndum og ljósari í kaldari löndum? Eða er reglan „dökkur jarðvegur = dökkur viður“?Litur viðar er hvorki háður veðurfari né jarðvegi. Það vill svo til að flestar trjátegundir í barrskógabeltinu (köldu löndunum) eru með frekar ljósan við en...
Munurinn á dökkum og ljósum púðursykri fest í því hversu mikið hann inniheldur af efnum sem gefa honum lit.
Púðursykur er oftast nær hreinsaður sykur sem búið er að húða með melassa (e. molasses), sykursírópi eða öðrum efnum sem gefa honum brúnan lit. Hversu dökkur sykurinn er fer eftir því hversu mikið af öð...
Mismunandi litir sands má rekja til uppruna hans og efnainnihalds. Í svari Sigurður Steinþórssonar við spurningunni Hvers vegna er fjörusandurinn mismunandi eftir því hvar hann er? kemur fram að í stórum dráttum megi flokka fjörusand við strendur Íslands í fjóra flokka eftir uppruna, það er:Sandur sem hafaldan mol...
Sólarljós og annað venjulegt ljós sem lýsir upp umhverfi okkar er oftast svokallað hvítt ljós, en hvítt ljós er í rauninni blanda af öllum litum ljóss. Litur hlutar ræðst af því hvernig hann endurkastar hvítu ljósi. Hlutur sem er til dæmis grænn endurkastar þeim lit meira en öðrum þegar hvítt ljós skín á hann, en ...
Grímsvötn eru fyrst nefnd í heimildum 1598, í bréfi á latínu sem Ólafur Einarsson heyrari í Skálholti, síðar prestur í Kirkjubæ í Hróarstungu, skrifaði um Grímsvatnagosið 1598.
Ekki er vitað um neinn mann að nafni Grímur sem Grímsvötn væru kennd við, en í Þjóðsögum Jóns Árnasonar eru Grímsvötn nefnd í sögunni ...
Eins og kemur fram í svari Heiðu Maríu Sigurðardóttur við spurningu um skilningarvitin fimm virkar sjónskynið þannig í grófum dráttum að hlutirnir í kringum okkur endurvarpa ljósi sem ljósnæmar frumur í augum okkar nema svo. Litir hlutanna ráðast svo af bylgjulengdum þess ljóss sem þeir endurvarpa og samspili þess...
Tunga gíraffans er dökk á lit en misjafnt er eftir heimildum hvernig henni er lýst. Hún er ýmist sögð vera dimmsvört, svarblá, fjólublá eða jafnvel blá að lit, en gera má ráð fyrir að þarna sé um einhvern breytileika að ræða líkt og með flest annað í lífríkinu.
Gíraffinn notar langa tungu sína til að slíta lauf...
Ljósir hlutir endurkasta yfirleitt sólarljósinu sem fellur á þá. Hvítt blað endurkastar til dæmis nær öllu sólarljósinu og það er einmitt ástæðan fyrir því að blaðið er hvítt. Hvítt sólarljós er nefnilega blanda af öllum litum. Ef við litum blaðið grænt þá gleypir það í sig aðra liti úr sólarljósinu en einmitt þan...
Nýfallinn snjór glitrar ekki, en harðfenni, sem er þéttari snjór, sem náð hefur að endurkristallast og mynda stærri samhangandi kristalla, glitrar.
Nýfallinn snjór er hvítur því örsmáir ískristallarnir í honum dreifa ljósinu í allar áttir óháð öldulengd, án þess að drekka mikið í sig. Ljósið getur náð einhverja...
Á Íslandi hafa fundist tólf tegundir ánamaðka sem lifa í mismunandi vist í jarðvegi.
Hér á landi finnast smávaxnar dökkar tegundir sem lifa á og við yfirborð jarðvegs, grafa ekki göng en æxlast og éta á yfirborðinu. Einnig finnast hér nokkuð stórar ljósleitar tegundir sem halda sig meira og minna niðri í jarðve...
Hér er einnig svarað spurningunum: Af hverju eru sumir rauðhærðir? Hvers vegna er hárið mitt ljóst?
Hárlitur stafar af litarefninu melaníni sem er myndað af litfrumum í merg hársekks. Eftir myndun færist melanínið í hárrótina, það er að segja þann hluta hárs sem er undir húðþekju og síðan upp í hárstilkinn eða þ...
Ef við lítum á mannkynið allt þá er dökkur háralitur algengastur, það er svartur eða mjög dökkbrúnn. Að Evrópu undanskilinni er dökkt hár nær alsráðandi sem náttúrulegur háralitur. Það er þó breytilegt hversu dökkur liturinn er, hvort hann er hrafnsvartur eða dökkbrúnn. Einnig er áferð hársins misjöfn, allt frá þv...
Orðið skotta er einkum notað sem heiti á kvendraugum og þekkist allt frá 18. öld. Þó er skotti til sem nafn á karldraug en er miklu fátíðara en skottuheitið. Í þjóðsögum kemur fram sú trú að höfuðbúnaður skottunnar hafi ráðið heitinu. Í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar má til dæmis finna þessi dæmi:Draga kvenndraugar...
Húðlitur á fólki er mismunandi. Við höfum oft tilhneigingu til að skipta veruleikanum upp í eðlislæga flokka á grundvelli ákveðinna staðalmynda og tölum þá um að sumir hafi ljósan húðlit, aðrir dökkan og enn aðrir gulan. Reyndin er hins vegar sú að ekki er til ein gerð af þeim ljósa, önnur af þeim dökka og sú þrið...
Sá sem er myrkur í máli talar þannig að erfitt getur verið að skilja hvert hann er að fara, hver skoðun hans er. Þá er til dæmis hægt að segja: ,,Ræðumaðurinn var svo myrkur í máli í málflutningi sínum að áhorfendur skildu illa boðskap hans.” Oft er sagt eitthvað á þessa leið: ,,Hann var ekki myrkur í máli í ræðu ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!