Stafsetningarreglur eru til margs nytsamlegar. Þetta vissi sá maður sem skrifaði ,,fyrstu málfræðiritgerðina“ á 12. öld. Honum þótti mikilvægt að gera Íslendingum nýtt stafróf þar sem fleiri hljóð og önnur voru í íslenska hljóðkerfinu en hinu latneska. Þannig gerði hann Íslendingum kleift að setja tungumál sitt á ...
Orðasambandið að komast í tæri við einhvern er kunnugt frá síðari hluta 18. aldar. Í íslensk-latnesk-danskri orðabók Björns Halldórssonar, sem unnin var undir lok 18. aldar en gefin út 1814, eru dönsku skýringarnar eftir málfræðinginn Rasmus Kristian Rask. Tæri er sagt merkja ‘Samliv’ (það er sambúð) og komast í t...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvernig og hvenær komst sá siður á að tala dönsku á sunnudögum? Var danskan staðbundin eða töluð út um allt land? Hvenær leið það undir lok?
Það var aldrei almennur siður að danska væri töluð um allt land. Helst brá dönsku fyrir á verslunarstöðunum þar sem danskra ka...
Danski málfræðingurinn Rasmus Kristian Rask fæddist 22. nóvember 1787 í bænum Brændekilde á Fjóni en lést 14. nóvember 1832 í Kaupmannahöfn. Hann gekk í latínuskóla í Óðinsvéum og hóf síðan guðfræðinám við háskólann í Kaupmannahöfn. Hann stundaði það samt lítt þar sem hann var með allan hugann við mál og málfræði....
Upprunalega spurningin var:
Hvers vegna er röðin á föllunum í íslenskum beygingum eftirfarandi: nf., þf., þgf., ef, þegar hún er nf., ef., þgf., þf. í öðrum tungumálum?
Í umfjöllun um latínu hefur verið viðtekin venja um aldir að hafa röð fallanna nf., ef., þgf., þf. Sá sem fyrstur skrifaði íslenska mállýsi...
Með hugtakinu staðlaðri stafsetningu er átt við sameiginlegar og yfirleitt opinberar reglur um hana.
Fyrstu opinberu stafsetningarreglurnar hér á landi eru ekki eldri en frá 1918 (sjá Jón Aðalstein Jónsson 1959:110–111) og saga opinberra reglna um stafsetningu nær því aðeins aftur um liðlega eina öld. Aðrar opi...
Þegar Íslendingar mynduðu sjálfstætt samfélag á miðöldum, það sem þeir kalla nú þjóðveldi, höfðu þeir ekki sérstakt tungumál. Sjálfir töldu þeir að tunga Norðurlandabúa (að frátöldum Finnum og Sömum) væri ein og kölluðu hana ýmist norrænu eða danska tungu. Á þessu svæði voru auðvitað talaðar margar ólíkar mállýsku...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Ég hef velt fyrir mér orðinu fjörfiskur og uppruna þess í svolítinn tíma. Ég hef farið í margar bækur, orðabækur og aðrar bækur sem skilgreina uppruna íslenskra orða en hef enn ekki fundið neitt dæmi um fjörfisk.
Ég er sjálf komin með kenningu, hún er sú að orðið fjörfiskur ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvernig og hvenær byrjuðu menn að rita á þann hátt að byrja setningar með stórum staf og enda þær á punkti?
Greinarmerkið punktur (.) er upprunnið hjá Grikkjum um 200 fyrir Krist. Letur var þá hástafaletur og því engir litlir stafir. Yfirleitt var ekki haft bil á mil...
Bókstafurinn é var notaður í mörgum elstu handritum frá um 1200 og fram á 14. öld til þess að tákna lengd sérhljóðs. Bókstafurinn é fékk síðar framburðinn íe og síðar je og á 14. öld er farið að skrifa ie í stað é. Sú venja hélst ærið lengi. Eggert Ólafsson skrifaði stafsetningarreglur árið 1762 þar sem hann mælti...
Fyrir nokkru svaraði ég fyrirspurn um hvað orðasambandið að böggull fylgi skammrifi merkti. Athugull lesandi hafði samband við Vísindavefinn og benti á að skýring mín á skammrifi væri röng. Ég mun því fara yfir málið aftur, byrja á því að skoða elstu heimildir og rekja síðan merkingarlýsinguna eins og hún birtist...
Hér er hægt að hlusta á lög úr bíómyndum sem gerðar hafa verið eftir sögum Astridar Lindgren.
Astrid Lindgren fæddist þann 14. nóvember árið 1907 á bænum Näs nálægt Vimmerby í Smálöndum í Svíþjóð.En þá hét hún ekki Astrid Lindgren heldur Astrid Anna Emilia Ericsson. Það var ekki fyrr en árið 1931,...
Spurningin öll hljóðaði svona:
Hvernig stendur á því að ö er haft aftast í íslenska stafrófinu á meðan t.d. á og í koma á eftir a og i, og ð kemur á eftir d en þ aftarlega?
Fyrst er rétt að rifja upp íslenska stafrófið og stafrófsröðina: a, á, b, d, ð, e, é, f, g, h, i, í, j, k, l, m, n, o, ó, p, r, s, t, u...
Erfitt er að segja til um hvenær fyrst var farið að nota punkta og kommur í rituðu máli og upplýsingar um það efni virðast ekki liggja á lausu. Í ýmsum fornum textum, til dæmis hettitískum áletrunum og textum skrifuðum á sanskrít, eru oftast engin sýnileg merki. Í öðrum textum má sjá strik, oftast lóðrétt eða á sk...
Veðurhæðar er nú að jafnaði getið í hraðaeiningunni metrar á sekúndu (m/s) enda er hann nú mældur með hraðamælum. Áður var notast við mat sem byggðist á svokölluðum Beaufort-kvarða. Kvarðinn sá hefur lengst af verið 13 stiga, lægst núll, hæst 12. Við matið var notast við töflu sem ber áhrif vindsins saman við mæld...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!