Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Vísindavefur HÍ er tíu ára í dag. Á afmælisdaginn verður haldið málþing um vísindamiðlun í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Málþingið fer fram þann 29.1.2010 frá klukkan 14-16.
Dagskráin er þessi:
Að hugsa á íslensku - um fræðin, Sigurður Svavarsson, útgefandi hjá Opnu
Vísinda- og rannsóknamiðlun til almennings: Þáttur HÍ og fjölmiðla, Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefnafræði
Vísindi efla alla dáð - en eiga þau erindi í fréttir?, Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt við meistaranám í blaða- og fréttamennsku
Vísindamiðlun og ungt fólk: Tölum við sama tungumálið?, Margrét Björk Sigurðardóttir, líffræðingur og starfsmaður Vísindavefsins
Málþingið er öllum opið á meðan húsrúm leyfir.
Þeir sem lifa og hrærast á Fasbók geta fengið nánari upplýsingar um málþingið á þessari Fasbókar-síðu. Þar er einnig hægt að tilkynna komu sína á málþingið.
Fyrirlestrarnir voru hluti af 10 ára afmæli Vísindavefsins og lokahátíð YOSCIWEB-verkefnisins