Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Já, menn dragast að jafnaði fremur að þeim sem svipar til þeirra sjálfra (Byrne, Ervin og Lamberth, 1970). Fólki líkar best við aðra á sama aldri, af sama kynþætti og með svipaða hæfileika og það sjálft í listum, íþróttum og bóknámi. Sömuleiðis er fólk líklegra til að velja sér maka sem er svipaður í útliti og það sjálft, af sama kynþætti, jafnmenntaður, í sömu þjóðfélagsstöðu, með álíka há laun, sem kemur úr svipaðri fjölskyldu, með sömu trúarafstöðu, sem er jafn félagslyndur og hefur svipaða afstöðu til stjórnmála, reykinga og áfengisdrykkju (Buss, 1985).
Fólki líkar best við þá sem líkjast þeim sjálfum mest.
Hvers vegna sækir líkur líkan heim? Makaval á þessum forsendum er ekki með öllu tilgangslaust því margt bendir til þess að hjón sem líkjast hvort öðru skilji síður en önnur hjón. Það verður líka að teljast sennilegt að sameiginlegir eiginleikar treysti sambönd fólks; hafi fólk til að mynda sömu viðhorf minnkar það líkur á alvarlegu ósætti sem leitt gæti til hjónaskilnaðar, og sameiginleg áhugamál ýta undir að hjón geri eitthvað saman og leggi þannig rækt við hjónabandið.
Svo má auðvitað ekki gleyma þeirri augljósu staðreynd að fólk er einfaldlega líklegra til að hitta þá sem svipar til þeirra sjálfra heldur en aðra, þar sem líkt fólk sækir gjarnan í sömu aðstæður (Price og Vandenberg, 1980). Þannig má gera ráð fyrir að listaspírur hitti oft aðrar listaspírur, að íþróttafólk hitti annað íþróttafólk og svo framvegis. Að auki er vitað að mönnum líkar best við það sem þeir þekkja vel, hvort sem það eru auglýsingar, popplög – eða annað fólk. Það fólk sem maður hittir dagsdaglega er því það fólk sem manni líkar best við, og svo vill til að það er yfirleitt það fólk sem einnig líkist manni hvað mest.
Heimildir:
Buss, D. M. (1985) Human mate selection. American Scientist, 73(1), 47-51.
Byrne, D., Ervin, C. R. og Lamberth, J. (1970). Continuity between the experimental study of attraction and real-life computer dating. Journal of Personality and Social Psychology, 16(1), 157-165.
Price, R. A. og Vandenberg, S. G. (1980). Spouse similarity in American and Swedish couples. Behavior genetics, 10(1), 59-71.
Heiða María Sigurðardóttir. „Er það satt að líkur sæki líkan heim?“ Vísindavefurinn, 15. mars 2006, sótt 21. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=5708.
Heiða María Sigurðardóttir. (2006, 15. mars). Er það satt að líkur sæki líkan heim? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=5708
Heiða María Sigurðardóttir. „Er það satt að líkur sæki líkan heim?“ Vísindavefurinn. 15. mar. 2006. Vefsíða. 21. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=5708>.