Sólin Sólin Rís 10:23 • sest 16:05 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:04 • Sest 15:29 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 12:18 • Síðdegis: 25:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:51 • Síðdegis: 18:50 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað merkir slótt í orðinu slóttugur?

Guðrún Kvaran

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Við höfum 'voldugur' af orðinu vald og 'saurugur' af orðinu saur - en hvað er þetta slótt í orðinu slóttugur?

Lýsingarorðið slóttugur þekkist þegar í fornu máli í merkingunni ‘slægur, kænn’ en dæmin virðast ekki mörg. Fornmálsorðabækur nefna orðið, bæði Johan Fritzner og Eiríkur Jónsson. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr þýðingu Guðbrands Þorlákssonar biskups frá 1632 á þýskri postillu eftir Andreas Pangratius:
huørsu sa slottugur og slægur Ande / kannn ad frammsetia Ritningena.

Ásgeir Blöndal Magnússon getur sér þess til að lýsingarorðið sé dregið af nafnorðinu *slóttr þótt dæmi finnist ekki um það (* merkir að myndin er endurgerð). Það ætti þá að merkja ‘slægð’ eða ‘kænska’.

Heimildir:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon. 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík. Orðsifjabókina má einnig finna á vef Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum undir Málið.is.
  • Eiríkur Jónsson. 1863. Oldnordisk Ordbog. Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab, Kjöbenhavn.
  • Fritzner, Johan. 1896. Ordbog over det gamle norske Sprog. Tredie Bind, R–Ö. Bls. 435. Den norske Forlagsforening, Kristiania.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. (Sótt 18.8.2024).

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

15.10.2024

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir slótt í orðinu slóttugur?“ Vísindavefurinn, 15. október 2024, sótt 23. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=86931.

Guðrún Kvaran. (2024, 15. október). Hvað merkir slótt í orðinu slóttugur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=86931

Guðrún Kvaran. „Hvað merkir slótt í orðinu slóttugur?“ Vísindavefurinn. 15. okt. 2024. Vefsíða. 23. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=86931>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...