Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
San Marínó er ríki í Appennínafjöllunum á norðanverðum Ítalíuskaga, á mörkum héraðanna Emilía-Rómanja og Marke. San Marínó er landlukt sem þýðir að það á hvergi landamæri að sjó og er það umlukið Ítalíu. Landið er með allra minnstu ríkjum heims aðeins 61,2 ferkílómetrar eða örlítið minna en sveitarfélagið Sandgerðisbær á Íslandi.
San Marínó er örlítið ríki, aðeins minna en Sandgerðisbær á Íslandi.
Opinbert heiti San Marínó er Serenissima Repubblica di San Marino en það þýðir á íslensku Hið háæruverðuga lýðveldi San Marínó. Áætlað er að íbúar landsins séu rétt í kringum 30.000 og er það með fámennustu ríkjum Evrópu. Opinbert tungumál landsins er ítalska. San Marínó er ekki í Evrópusambandinu en notar engu að síður evru sem gjaldmiðil.
Heimildir:
Sigurður Snorri Halldórsson og Egill Ástráðsson. „Hvað getið þið sagt mér um San Marínó?“ Vísindavefurinn, 12. júní 2009, sótt 23. nóvember 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=27416.
Sigurður Snorri Halldórsson og Egill Ástráðsson. (2009, 12. júní). Hvað getið þið sagt mér um San Marínó? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=27416
Sigurður Snorri Halldórsson og Egill Ástráðsson. „Hvað getið þið sagt mér um San Marínó?“ Vísindavefurinn. 12. jún. 2009. Vefsíða. 23. nóv. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=27416>.