Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Eru einhver örnefni á Íslandi sem tengjast hvítabjörnum?

Svavar Sigmundsson

Hvítabjarnar-örnefni er að finna á að minnsta kosti þremur stöðum á landinu. Ekkert af þeim virðist vera nefnt í fornum textum.

Hvítabjarnarey er út af Stykkishólmi. Í sóknarlýsingu er hún nefnd Hvítubjarnarey í aukafalli (í Hvítubjarnarey, bls. 196). Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá því að hún dragi nafn af því að þar hafi hvítabjörn komið á land og lagst í bás einn sunnan á eynni sem er luktur háum hamrabjörgum allt í kring. Tröllkona ein í Helgafelli reyndi að bana honum með því að kasta steini út í eyna en steinninn lenti ofar en hún ætlaði og björninn varð ómeiddur (I:197).

Hvítabjarnarey á Breiðafirði.

Undir Reykhólum í Reykhólasveit eru bæði Hvítabjarnarhólmi og Hvítabjarnarflögur. Í sýslulýsingu Barðastrandarsýslu frá 1746, eftir Ólaf Árnason í Haga á Barðaströnd, eru nefndar allmargar eyjar undir Reykhólum og eru þar á meðal Hvítabjörn og Hvítabjarnarhólmi (bls. 165). Eyjan Hvítabjörn er ekki þekkt nú svo vitað sé. Í örnefnalýsingu Samúels Eggertssonar um Reykhóla eru nefndar Stóra- og Litla-Hvítabjarnarey, Hvítabjarnareyjarhólmi og Hvítabjarnareyjarflögur (þrjár). Í Íslensku fornbréfasafni er Ágrip af skiptabréfi eftir Odd Sigurðsson frá 1506. Þar er nefnd Hvítabjarnarey (XI:59-60) og er líklegt að þar sé átt við ey þá sem heyrir undir Reykhóla þar sem þeir eru nefndir í bréfinu. Engar sagnir eru þekktar um hvítabjörn á þessum slóðum.

Í landi Reykja í Hrútafirði eru fjögur örnefni kennd við hvítabjörn, Hvítabjarnargil, Hvítabjarnarhóll, Hvítabjarnarnes og Hvítabjarnarvatn. Í sóknarlýsingu frá 1848 er nefnt Hvítabjarnargil fyrir sunnan Reyki sem renni úr vatni uppi á hálsi, og Hvítabjarnarvatn upp undan Reykjum; „í því er hólmi, manngerður í fornöld með dálítið meira varpi (nokkrar æður)“ (bls. 14). Hvítabjörn hefur ef til vill gert sig heimakominn í því æðarvarpi. Í örnefnalýsingu stendur að Hvítabjarnargil heiti Hvítabjarnarlækur ofan brúnar og hann komi úr Helgavatni. Á Hvítabjarnarhól er endurvarp frá Skálafelli. Hvítabjarnarnes er þar einnig nefnt Hvítabjarnartangi. Sögn er til um að hvítabjörn hafi gengið á land í Hvítabjarnarnesi. „Þaðan fór hann upp með Hvítabjarnargili og hafðist við milli Hvítabjarnarvatns og Helgatjarnar. Eitt sinn var maður á ferð frá Reykjum að Búrfelli. Hann var vopnlaus, en annar maður fylgdi honum á leið, og hafði sá atgeir í hendi. Bangsi sá til ferða þeirra, en var hinn rólegasti, meðan þeir voru báðir saman. Þegar mennirnir voru komnir austur á Sandhólahraun, sneri fylgdarmaðurinn við, en hinn hélt áfram ferðinni. Þá sætti björninn lagi, fór á eftir vopnlausa manninum og drap hann.“ (Örnefnaskrá Reykja).

Ýmis Bjarnar-örnefni eru í landinu en ekkert er hægt að segja um hvort um er að ræða bjarndýr eða mannsnafnið Björn sem forlið. Bæjanöfnin Bjarnarhöfn og Bjarnargil eru á meðal þeirra. Í Landnámu er Bjarnarhöfn kennd við Björn austræna en um Bjarnargil eru ekki fornar heimildir (Íslenzk fornrit I:122). Nokkur Bjarndýrs-örnefni eru einnig til, meðal annars Bjarndýrsklöpp á fjórum stöðum á Austurlandi (Árbók Ferðafélagsins 2008) en þeim verða ekki gerð skil að sinni. Sama er að segja um örnefni eins og Björninn, fjalllendi upp af Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu, sem væntanlega er dregið af líkingu við bjarndýr.

Heimildir og myndir:

  • Árbók Ferðafélags Íslands 2008. Úthérað ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og Loðmundarfirði eftir Hjörleif Guttormsson. Reykjavík.
  • Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Safnað hefur Jón Árnason. Reykjavík 1961.
  • Íslenzkt fornbréfasafn. XI. Reykjavík 1915-1925.
  • Landnámabók. Íslenzk fornrit I. Reykjavík 1968.
  • Sýslulýsingar 1744-1749. Sögurit XXVIII. Reykjavík 1957.
  • Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags 1839-1873. I. Húnavatnssýsla. Reykjavík 1950.
  • Sýslu- og sóknalýsingar Hins íslenzka bókmenntafélags. Snæfellsnes III. Reykjavík 1970.
  • Uppdráttur Íslands. 1:100 000. Blað 23. Geodætisk institut. Landmælingar Íslands 1964.
  • Uppdráttur Íslands. 1: 100 000. Blað 24. Geodætisk institut. Landmælingar Íslands 1974.
  • Uppdráttur Íslands. 1: 100 000. Blað 34. Landmælingar Íslands 1975.
  • Uppdráttur Íslands. 1: 100 000. Blað 77. Landmælingar Íslands 1974.
  • Mynd: Hvítabjarnarey | Flickr - Photo Sharing! Höfundur myndar: Þorsteinn Eyþórsson. (Sótt 22. 5. 2015).
  • File:Ursus maritimus at Tierpark Berlin.jpg - Wikimedia Commons. (Sótt 26.05.2015).

Þetta svar hefur einnig birst sem pistill á vef Stofnunar Árna Magnússonar og er birt hér með góðfúslegu leyfi.

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

26.5.2015

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Eru einhver örnefni á Íslandi sem tengjast hvítabjörnum?“ Vísindavefurinn, 26. maí 2015. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70190.

Svavar Sigmundsson. (2015, 26. maí). Eru einhver örnefni á Íslandi sem tengjast hvítabjörnum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70190

Svavar Sigmundsson. „Eru einhver örnefni á Íslandi sem tengjast hvítabjörnum?“ Vísindavefurinn. 26. maí. 2015. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70190>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...