Spurning
Éta einhverjar fisktegundir svartfuglsegg?
Spyrjandi
Hulda Ósk Jónsdóttir, f. 1997
Svar
Það er harla erfitt fyrir fiska að komast í tæri við svartfuglsegg þar sem svartfuglar verpa á þurru landi líkt og aðrir fuglar. Þegar talað er um svartfugla er átt við algenga sjófugla við Ísland, til dæmis lunda (Fratercula arctica), langvíu (Uria aalge), stuttnefju (Uria lomvia) og álku (Alca torda).![]() |
Engin fisktegund étur þess vegna svartfuglsegg, að minnsta kosti ekki að staðaldri.
Mynd:
- en.wikipedia.org - Atlantic Puffin. Sótt 22.5.2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur29.5.2012
Flokkun:
Efnisorð
svartfugl svartfuglsegg fiskar egg sjófuglar lundi langvía stuttnefja álka fæði
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Éta einhverjar fisktegundir svartfuglsegg?“. Vísindavefurinn 29.5.2012. http://visindavefur.is/?id=62562. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur






