Spurning

Hvað er jörðin þykk?

Spyrjandi

Stefán Valentínusson

Svar

Snúningur jarðar veldur því að hún er ekki nákvæmlega kúlulaga heldur er fjarlægðin frá miðju og út að miðbaug meiri en fjarlægðin frá miðju og út að pólunum. Þetta veldur því að þvermál jarðar við miðbaug er 12.756 km en þvermál milli pólanna er 12.713 km. Meðalþvermál er hins vegar 12.740 km.

Hugsum okkur að hægt væri að bora beina leið ofan í jörðina gegnum miðju hennar og koma út nákvæmlega hinum megin á hnettinum. Þessar tölur þýða þá til dæmis að vegalengdin væri nærri því tíu sinnum lengri en hringvegurinn um Ísland (1336 km).

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur21.6.2000

Tilvísun

TÞ. „Hvað er jörðin þykk? “. Vísindavefurinn 21.6.2000. http://visindavefur.is/?id=555. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans