Spurning

Hver voru algeng nöfn víkinga?

Spyrjandi

Jóhann Gísli Jónsson, f. 2000

Svar

Eftir því sem ég best veit hefur ekki verið tekinn saman listi yfir þá sem töldust víkingar eða vitað var að héldu í víking. Til er stuttur kafli um nöfn sem þekkt eru frá víkingatímanum í bók Assars Janzéns um norræn eiginnöfn (1948:28-29). Þau eru ekki sérstaklega nöfn á þeim sem héldu í víking heldur heimildir um nöfn karla og kvenna frá þeim tíma sem kallaður hefur verið víkingaöld (um 800-1050).

Í Íslendingasögum og öðrum norrænum miðaldaritum er víða nefnt að menn hafi haldið í víking, sem virðist hafa verið blanda af ráns- og verslunarferðum, og báru þeir algeng norræn nöfn sem flest þekkjast enn í dag, sömu nöfn og nefnd eru til dæmis í Landnámu. Þar sem tíðni nafna frá þessum tíma er ekki aðgengileg er ekki unnt að segja neitt með vissu um algeng nöfn víkinga. Það vekur hins vegar athygli hversu nafn þrumuguðsins Þórs var algengt um það leyti sem Ísland byggðist þótt aldrei kæmi það fram ósamsett. Nefna má Þorbjörn, Þorgeir, Þorgrímur, Þorkell, Þorsteinn, Þórður, Þórir, Þórarinn. Önnur algeng karlmannsnöfn voru til dæmis Helgi, Ketill, Björn, Grímur, Einar og Eyvindur. Áhugavert verkefni væri að tína saman nöfn þeirra manna sem héldu í víking en það bíður betri tíma.

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Heimild og mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur11.5.2011

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver voru algeng nöfn víkinga?“. Vísindavefurinn 11.5.2011. http://visindavefur.is/?id=58868. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Guðrún Kvaranprófessor



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans