Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík

Hvað getiði sagt mér um Finnland?

Una Pétursdóttir, Benedikt Blöndal og Jón Sigurðsson

Finnland tilheyrir Skandinavíu og er eitt Norðurlanda. Grannlönd þess eru Noregur, Svíþjóð og Rússland. Upphaflega var Finnland hérað í Svíþjóð sem síðar varð að sænsku hertogadæmi. Frá árinu 1809 tilheyrði hertogadæmið Rússlandi, og 6. desember 1917 varð Finnland sjálfstætt ríki. Þegar þetta er skrifað (árið 2005) er Tarja Halonen forseti landsins og Matti Vahanen er forsætisráðherra. Gjaldmiðill Finnlands er evran, en hún var tekin í notkun í janúar 1999.

Finnland er 338.145 ferkílómetrar að flatarmáli, og er oft kallað þúsund vatna landið vegna fjölda stöðuvatna sem þar eru, en þau eru yfir 60.000 talsins. Mestur hluti landsins er slétta sem liggur í um 120-180 metrum yfir sjávarmáli. Hæsti tindur landsins er Haltiatunturi sem er 1.328 metrar.

Í Finnlandi er mikill munur á meðalhita sumars og veturs en þar ríkir meginlandsloftslag því áhrifa úthafs gætir ekki. Mestur hluti landsins er skógi vaxinn, en algengustu trjátegundir landsins eru greni, fura og silfurbirki. Mörg dýr lifa í norðurhéruðum Finnlands, til dæmis birnir, úlfar, refir, gaupur (dýr af kattarkyni) og ýmsar tegundir fugla. Mikið er um ferskvatnsfisk, saltvatnsfisk og seli.

5.223.442 manns búa í Finnlandi, ef miðað er við tölur frá júlí 2005. 93% þeirra eru finnskir, 6% sænskir og 1% tilheyrir öðrum þjóðernum. Opinber tungumál eru bæði finnska og sænska, þótt um 2% íbúa landsins tali önnur tungumál svo sem samísku og rússnesku.

Höfuðborg Finnlands heitir Helsinki, eða Helsingfors á sænsku, og er stærsta borg landsins og ennfremur nyrsta höfuðborg á meginlandi Evrópu. Hún er helsta menningar-, framleiðslu-, og verslunarmiðstöð Finnlands, en auk Helsinki eru Tampere (Tammerfors) og Turku (Åbo) áberandi iðnaðar- og menningarborgir.

Heimildir og myndir


Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2005, og nemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.

Höfundar

unga fólkið svarar 2002

nemandi í Háskóla unga fólksins

nemandi í Háskóla unga fólksins

Útgáfudagur

11.4.2002

Spyrjandi

Þorgerður Johannsdóttir

Tilvísun

Una Pétursdóttir, Benedikt Blöndal og Jón Sigurðsson. „Hvað getiði sagt mér um Finnland?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2002. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=2286.

Una Pétursdóttir, Benedikt Blöndal og Jón Sigurðsson. (2002, 11. apríl). Hvað getiði sagt mér um Finnland? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=2286

Una Pétursdóttir, Benedikt Blöndal og Jón Sigurðsson. „Hvað getiði sagt mér um Finnland?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2002. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=2286>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað getiði sagt mér um Finnland?
Finnland tilheyrir Skandinavíu og er eitt Norðurlanda. Grannlönd þess eru Noregur, Svíþjóð og Rússland. Upphaflega var Finnland hérað í Svíþjóð sem síðar varð að sænsku hertogadæmi. Frá árinu 1809 tilheyrði hertogadæmið Rússlandi, og 6. desember 1917 varð Finnland sjálfstætt ríki. Þegar þetta er skrifað (árið 2005) er Tarja Halonen forseti landsins og Matti Vahanen er forsætisráðherra. Gjaldmiðill Finnlands er evran, en hún var tekin í notkun í janúar 1999.

Finnland er 338.145 ferkílómetrar að flatarmáli, og er oft kallað þúsund vatna landið vegna fjölda stöðuvatna sem þar eru, en þau eru yfir 60.000 talsins. Mestur hluti landsins er slétta sem liggur í um 120-180 metrum yfir sjávarmáli. Hæsti tindur landsins er Haltiatunturi sem er 1.328 metrar.

Í Finnlandi er mikill munur á meðalhita sumars og veturs en þar ríkir meginlandsloftslag því áhrifa úthafs gætir ekki. Mestur hluti landsins er skógi vaxinn, en algengustu trjátegundir landsins eru greni, fura og silfurbirki. Mörg dýr lifa í norðurhéruðum Finnlands, til dæmis birnir, úlfar, refir, gaupur (dýr af kattarkyni) og ýmsar tegundir fugla. Mikið er um ferskvatnsfisk, saltvatnsfisk og seli.

5.223.442 manns búa í Finnlandi, ef miðað er við tölur frá júlí 2005. 93% þeirra eru finnskir, 6% sænskir og 1% tilheyrir öðrum þjóðernum. Opinber tungumál eru bæði finnska og sænska, þótt um 2% íbúa landsins tali önnur tungumál svo sem samísku og rússnesku.

Höfuðborg Finnlands heitir Helsinki, eða Helsingfors á sænsku, og er stærsta borg landsins og ennfremur nyrsta höfuðborg á meginlandi Evrópu. Hún er helsta menningar-, framleiðslu-, og verslunarmiðstöð Finnlands, en auk Helsinki eru Tampere (Tammerfors) og Turku (Åbo) áberandi iðnaðar- og menningarborgir.

Heimildir og myndir


Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2005, og nemanda á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna....