Spurning
Hvađa eldfjall hefur gosiđ mest?
Spyrjandi
Sighvatur Gíslason
Svar

Virkustu eldfjöll á Íslandi eru sennilega Hekla, Grímsvötn og Katla. Sé litiđ svo á, sem margir gera, ađ Skaftáreldagosiđ 1783 tengist í rauninni Grímsvötnum, eru ţau ţađ eldfjall sem mest hefur gosiđ. Lakagígahrauniđ eitt er taliđ vera um 15 km3 — mest ađ rúmmáli ţeirra hrauna sem runniđ hafa á sögulegum tíma. Ađ auki eru gos tíđ í Grímsvötnum sjálfum, sennilega meira en 30 gos á síđustu 400 árum. Ćtla má ađ samanlagt rúmmál ţeirra sé ađ minnsta kosti 3 km3 en rúmmál gosmyndana eftir ísöld (10.000 ár) sem tengjast Grímsvötnum er sennilega nćr 55 km3.
Katla hefur gosiđ 17 sinnum á sögulegum tíma. Eldgjá virđist tengjast Kötlu međ sama hćtti og Lakagígar tengjast Grímsvötnum, og ţar varđ mesta gosiđ tengt Kötlu áriđ 934. Eldgjárhrauniđ nálgast Lakagígahrauniđ ađ rúmmáli. Sömuleiđis lítur út fyrir ađ heildarrúmmál gosefna frá Kötlu síđustu 10.000 ár gefi Grímsvötnum lítt eftir.
Hekla hefur gosiđ ađ minnsta kosti 17 sinnum á sögulegum tíma, fyrst áriđ 1104, og á 20. öld var hún sérlega virk — gaus fjórum sinnum: 1947-48, 1970, 1980-81 og 1991. Samanlagt rúmmál gosmyndana Heklu á sögulegum tíma er um 7 km3 en eftir ísöld 42 km3.
Ţennan samanburđ yfir virkni á sögulegum tíma (1100 ár) má taka saman í töflu:
Fjöldi gosa |
Rúmmál gosmyndana km3 | |
Grímsvötn |
100 ? |
18 |
Katla |
17 |
12 ? |
Hekla |
17 |
7 |
Mynd: Náttúruhamfarir og mannlíf (sigurvegari í Hugvísi 1996)
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur24.8.2001
Flokkun:
Tilvísun
Sigurđur Steinţórsson. „Hvađa eldfjall hefur gosiđ mest?“. Vísindavefurinn 24.8.2001. http://visindavefur.is/?id=1844. (Skođađ 19.6.2013).
Höfundur
Sigurđur Steinţórssonprófessor í jarđfrćđi viđ HÍ





